pikknikk
Pikknikk er nýstárleg upplifunarverslun þar sem boðið verður upp á
upplifanir í hönnun, mat og drykk í skemmtilegu uppgerðu
iðnaðarhúsnæði í Héðinsporti, í vesturbæ Reykjavíkur.
Í Pikknikk verður til sölu og sýnis valin íslensk hönnun eftir þekkta
og minna þekkta hönnuði og listamenn í afslöppuðu andrúmslofti.
Rýmið er bæði hugsað sem verslun og veislusalur.
Pikknikk hefur verið starfrækt í allt sumar við góðar undirtektir.
Ákveðið hefur verið að pikknikk verði starfrækt út september
mánuð og er opinunartíminn sem hér segir:
þriðjudaga - föstudaga frá kl. 12-18 og laugardaga frá kl. 12-16.
Möguleiki fyrir einkapikknikk utan opnunartíma.
|